Strumpurinn minn litli á afmæli í dag:)

Hæ elskurnarKissing

Jæja nú er allt að smella fyrir jólin, Jólafötin á börnin komin, jólaklippingin, jólahreingerningin, allt orðið vel skreytt, á bara 3 jólagjafir eftir, möndlugjöfina og að senda jólakortin þá er allt komiðWink.

Fyrir nákvæmlega 6 árum síðan kom elsku litli strumpurinn minn í heiminn, reyndar var hann ekkert svo lítill 16,5 merkur og 54 cm, kom samt 10 dögum fyrir tímannWink. Miða við systur sína sem var 11,5 merkur og 48 cm og kom 17 dögum fyrir tímannWink. Mér finnst þetta frábær skipting eitt lítið barn sem var stelpa, og eitt meðalstórt barn sem var strákur, og bæði lítil desember jólabörnInLove....

Hérna koma nokkrar myndir af afmælisbarninu, hann er svooo mikill strumpurSmile....

Picture 003

Ótrúlegur dýravinurSmile.

Picture 050

Picture 016

Hann er líka mikill rokkari og elskar að syngja og leika sér að spila á gítarWink

Picture 077

Picture 079

Í dag er stór dagur, fyrst er það jólaball í skólanum hjá börnunum og síðan afmælið hans Elís Viktors beint þar á eftirWink. Hann ætlar að bjóða bekknum sínum og nokkrum auka vinum ossa gaman og mikil tilhlökkunGrin.

Jæja elskurnar ætla halda áfram að undirbúa afmælið, heyri í ykkurKissingKissingKissing....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Silla Ísfeld

Takk fyrir ástin mín, já sjáustum á morgun, hlakka til að sjá ykkur elskan mín....

Silla Ísfeld, 19.12.2007 kl. 00:38

2 identicon

Elsku besta Silla ... innilega til hamingju með strumpinn þinn litla!

Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Elís Viktor,
hann á afmæli í dag!!!!

Innilegar hamingjuóskir, kærar kveðjur og knús!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 02:05

3 Smámynd: Silla Ísfeld

Takk fyrir elsku Doddi minn

Bestu kveðjur norður til ykkar....

Silla Ísfeld, 19.12.2007 kl. 02:19

4 Smámynd: eybergsmamman

Til hamingju með stóra sæta strákinn þinn:)

Njótið dagsins.....

eybergsmamman , 19.12.2007 kl. 07:24

5 Smámynd: Silla Ísfeld

Þakka þér fyrir Ásta mín.

Eins og með Lísu Maríu lásum við Elís Viktor afmæliskveðjurnar saman, eftir sjálft afmælispartýið. Honum fannst það ekkert smá gaman.

Takk innilega fyrir kveðjurnar....

Silla Ísfeld, 20.12.2007 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband