29.1.2007 | 21:39
Mánudagur 29. Janúar.2007
Alúúúú elskurnar
OOjjjbara hvað ég var andvaka í nótt, held ég hafi ekki sofnað fyrr en undir morgun. Svo þegar klukkan hringdi í morgun, ákvað ég bara að sofa pínu lengur og gerði það
. Mætti svo fersk á æfingu og hljóp lengur en ég hef gert í langan tíma, osssaaa gott
.
Þessar vikurnar sæki ég Elís Viktor kl:13, 1 sinni í viku út af manneklu. Þetta er ekkert smá pústl. Sem betur fer get ég stundum komið því þannig fyrir, að ég taki börnin með mér í vinnuna. Þannig var það í dag. Ég tók Elís Viktor með mér í vinnuna. Var einmitt með skjólstæðing sem börnunum finnst mjög skemmtilegur. Hann hefur sinn stíl, er með bleikt, blátt og fjólublátt hár
. Lísu Maríu finnst það æðislegt og verður alveg dolfallinn í hvert skifti sem hún sér hann
. Elís Viktor finnst það ekki eins flott, en finnst æðislegt að hann sé með sítt hár
.
Jæja kom vinnudeginum þannig fyrir að hann var bara stuttur í dag, enda með Elís Viktor með mér. Þegar heim var komið hófst Elís Viktor handa við bakstur, ekkert smá duglegur. Börnin voru búin að biðja mig í heila viku, að baka Bananabaruð. Við létum verða að því í dag
. Ég þuldi uppskriftina upp fyrir Elís Viktor, hann sá um allt annað
. Honum finnst svo gaman að baka og búa til matinn, hann elskar það
. Þegar Lísa María var búin í skólanum kom hún heim í volgt Bananabrauð
. Vá fagnaðarlætin, þegar hún fann bökunarliktina af brauðinu. það var eins og hún hafi verið að fá geðveika jólagjöf
.
Ég gleymi alveg að segja ykkur frá helginni. Ég fór í partý til Ragnheiðar á föstudagskvöldinu, ótrúlega gaman
. Þegar ég var að ganga inn, mætti ég vinkonu hennar á bílaplaninu. "Ertu að fara í afmæli til Ragnheiðar? AFMÆLI, Á HÚN AFMÆLI
" það var sko ekki verið að segja mér það, bara ég væri boðin í partý. Þegar ég hitti svo Ragnheiði og Tryggva fékk ég að vita, þetta væri ekki afmælispartý úúúfff púfff
. Hvað er meira halló en að mæta í afmæli, ekki með gjöf
. Ég fylgdist líka alveg sérstaklega vel með þeim sem komu á eftir mér, það kom engin með gjöf sem betur fer
.... Á laugardagskvöldinu var ferðinni heitið á Nasa. Ný Dönsk var með ball þar, en beilaði svo á því að lokum. Var í heimsókn í heimahúsi langt fram á nótt, mjög fínt
... Þetta var bara alveg stórfín helgi
. Takk fyrir mig
.... Ég tók myndir um helgina sem ég mun láta inn við fyrsta tækifæri
.
Jæja held ég hafi þetta ekki lengra að sinni. Ætla fara dúlla mér e-h, lesa og svo að sofa. Vakna svo fersk og fín á æfingu í fyrramálið. Góða nótt elskurnar
......
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.