15.2.2007 | 23:29
Fimmtudagur 15. Febrúar. 2007
Hæ elskurnar
Til hamingju með daginn í gær, elllllsku dúllurnar mínar. Ég fékk 13 bleikar rósir ligga, ligga, láááiii, ÉG ELSKA RÓSIR
. Eruði alveg að fara úr límingunum, að fá að vita frá hverjum þær voru
. Ooohhh það er nú alveg greinilegt að ég er ekki eina forvitna manneskjan á Íslandi
.................. Þær voru frá henni Hildi vinkonu minni, hún var svo sæt að koma með þessar yndislegu rósir, þegar hún mætti til mín í saumaklúbb í gær
. Ég er búin að horfa á þær svona 770 sinnum í dag, ég elska Rósir
.
Mikið rosalega var gaman hjá okkur í saumaklúbbnum í gær, borðuðum kræsingar eins og við gátum í okkur látið og blöðruðum eins og það væri engin morgundagur. Við Hildur vorum e-h að tala um saumaklúbbinn í þjálfun á þriðjudaginn. Hemmi heyrði að sjálfsögðu til okkar og spyr hverjar séu með okkur í saumó, ég sagði honum það, þá kom bara löng þögn hjá honum......... Sagði svo,he, he vá maður, saumaklúbbur dauðans
...... Hann hefur verið með 5 af okkur í þjálfun, veit alveg hvað við getum haft hátt, blaðrað mikið og útí hvað umræðuefnið getur farið, svo ég segi nú ekki meir
........
Þetta var nú meiri hoppi skoppi þjálfunin í morgunn. Við hoppuðum uppá allt og yfir allt sem fyrir finnst á stöðinni, held ég bara, í heilan klukkutíma. Hemmi var semsagt alveg í essinu sínu, þá erum við píndar í botn
. Mér finnst frábært að blanda saman brennslu, þol og lyftingaræfingu og ekkert smá gaman
. Sykurát gærkvöldsins í saumaklúbbnum hafði að vísu alveg sitt að segja á æfingunni í morgunn. Þvílíkt sem svona sykurát kemur niður á manni, okkur leið eins og við værum tonn á þyngd. Enda var dagurinn í dag tekinn með trompi
. Byrjað á geggaðari æfingu og mataræðið uppá 770%
............
Jæja þá er það Eurovisioooonnn je, je, je, je, je, Ætla að kíkja í partý og að sjálfsögðu að taka virkan þátt í símakostningu, frekar en ekki hvað
.... Hlakka ekkert smá til
......
Jæja elskurnar ætla fara að sofa, góða nótt dúllurnar mínar.....
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.