28.2.2007 | 21:18
Miðvikudagur 28. Febrúar.2007
Hæ elskurnar
Vúúúhhúúú. Aníta vinkona hringdi í mig í gær til að minna mig á partýið næstu helgi
. Ég var ekkert búin að gleyma því, þó gleymin sé
. Hhhaa og vitið hvað???? Það er hárkolluþema, ekkert smá gaman að hafa svona smá öðruvísi partý
. Nú er bara að finna sér hárkollu
. Lísa María á tvær, Sollu Stirðu og Línu Langsokk. Ég prófaði að máta Sollu Stirðu hárkolluna, hún passar alveg á mig, ég er með svo lítinn haus
. Ég var ekkert smá bleik og fín, bleikt er einmitt uppáhalds liturinn minn, ef þið hafið ekki tekið eftir því
. En svo er það hinn póllinn, að redda sér einhverri GEÐVEIKRI hárkollu
. Af því ég er með stutt hár, að fá einhverja með ótrúlega flott sítt hár, og hafa hana þess vegna í öðrum lit, brúnt, rautt, svart
. Nei ekki svart, ég yrði eins og skrattinn
. það er alveg mesta furða hvað svart klæðir mig illa
. Ég verð eins og draugur í framan, ég er ekki að grínast... Ég og svart eigum enga samleið, verð að vera í litum nálægt andlitinu
. Bla, bla jólakaka, nóg um þetta
. Hárkolla!!! Nú þarf ég að redda mér hárkollu
. Kannski verð ég bara með Sollu Stirðu, kemur í ljós
.
Ég var búin að hlaða inn nokkrum myndum hérna í gær, en tók þær aftur út af góðri og gildri ástæðu. Tek bara enn fleiri myndir næstu helgi í hárkollu partýinu, og læt hingað inn.
Jæja nú ætlum við Hildur að taka æfingu klukkutíma fyrr en vanalega, alltaf svona snemma á fimmtudögum. Sem betur fer bara á fimmtudögum
. En það munar ekkert smá á þessum eina klukkutíma, það er bara hægt að dúúúlla sér, sem maður getur ekki vanalega
. Dúúúlllí, Dúllí, Rúllí, ég ætla sko að gera það á morgun
. Núúú er ég farin að bullaaa, og þá er ágætt að hætta
.
Góða nótt elskurnar........
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.