20.3.2007 | 23:55
Elsku dúllurnar mínar;)
Hæ elskurnar
Helgin var alveg yndisleg, róleg og góð með börnunum mínum. Fórum í söngskólann, ballett, heimsóknir hingað og þangað, Sunnudagaskólann á sunnudeginum o.fl o.fl. Við Elís Viktor fórum í Bónus í gær á meðan Lísa María var í bekkjar afmæli. Hann labbaði um alla búð og söng hátt og skýrt, B I B L I A, er bókin bókana (Þetta lag er alltaf sungið í sunnudagaslólanum). Fólk gat ekki annað en brosað þegar það fylgdist með honum. Alltaf syngjandi
Jæja nú er komið að saumaklúbbshitting á morgun, mikið rosalega hlakka ég til. Veit að vísu ekkert hvað ég ætla að vera með, legst í kokkabækurnar mínar á morgun. Við komum allar með e-h, og úr því verður heljarinnar veisluborð. Mætum svo á æfingu á fimmtudeginum og getum ekki hreift á okkur rassgatið fyrir sykuráti, frá deginum áður.
Ekkert smá frábært, pósturinn minn,msn-ið, semsagt allt draslið komið í lag úúúfff, engin smá léttir. Við Siggi vinur minn, maðurinn hennar Friðriku vinkonu. Erum búin að vera í sambandi við Microsoft í tæpar 2 vikur, að reyna redda þessu. Þetta tókst á endanum, vaaaar bara að gerast. Þurfti að gera fyllilega grein fyrir hver ég væri, og hvað væri í póstinum mínum, sem gæti staðfest að ég væri ég, og margt fleira. Þolinmæðin þrautin vinnur alla.
Ég er orðin svo þreytt, get varla hugsað heila hugsun. Heyri betur í ykkur, góða nótt elskurnar
Athugasemdir
Góða skemmtun í saumó í kvöld sæta mín
Gott að allt er komið í lag hjá þér
Heyrumst vonandi fyrir helgi betur.. kossar og knús..
ELLÝ GELLÝ (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 15:23
Hæ elskan
Það var geðveikislega gaman í saumaklúbbnum
Já heyrumst fyrir helgi, kelli mín
Kossar og rembings knús
Silla Ísfeld, 22.3.2007 kl. 16:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.