Komin helgi;)

Hæ elskurnarKissing

Komin helgi en og aftur, tíminn ekkert smá fljótur að líða og sumardagurinn fyrsti í næstu vikuWink. Mér finnst svo stutt síðan ég sagði, vá maður, bara komin september, og nú er aprílShocking. Ekki nema von maður ruglist þegar maður er spurður um aldur " 20 oooggg, nei heyrðu 31Tounge.

Á morgun er það söngskólinn og ballettSmile. Elís Viktor á að syngja inn á dvd disk og Lísa María að æfa fyrir ballettsýningu sem nálgast óðfluga, nóg að geraWink. Ellý vinkona ætlar að kíkja í heimsókn núna um helgina, það verður samt - glóðarsteikti Akureyringurinn að þessu sinn, hann kemur seinna með henniWink. Ég er mikið að spá í að skella mér á skauta með börnin um helgina, skemmtum okkur svo ótrúlega vel síðastTounge. Ef það verður ágætis veður um helgina væri ég líka alveg til í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn, hann stendur alltaf fyrir sínuWink. Svo að sjálfsögðu verður það sunnudagaskólinn, á sínum stað eins og vanalega.

Ég hlakka ekkert smá til að gefa börnunum sumargjafirnar sínar í næstu viku, ætla gefa þeim hjólGrin. Þau vita ekkert af því, eru alltaf að koma með nýja og nýja óskalista sem breytast dag frá degi, ég læt sem ekkert séTounge. " Já, ég skal taka það til umhugsunar, þið verðið svo bara að bíða og sjá hvað þið fáið"Wink. Þau er alveg að sálast úr forvitni, enda börn mömmu sinnar sem er yfir forvitningurinn, ef það orð er tilTounge.

Það getur verið ef ég hef tíma núna um helgina, að ég skelli inn nokkrum myndumWink. Annars segi ég bara góða helgi elskurnarKissingKissingKissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Silla Ísfeld

Bíddu nú aðeins róleg elskan mín, "Elísabet stutthærða" . Það er ekkert skemmtu þér vel um helgina neitt, ég hitti þig á morgun, ég verð að fá að sjá. Púki geturðu verið, ég er rétt nýbúin að sleppa orðinu að ég sé yfir forvitlingurinn, svo kemurðu með e-h svona. Heyri í þér á morgun elskan mín..... 

Silla Ísfeld, 14.4.2007 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband