19.4.2007 | 00:46
Gleðilegt sumar dúúúllurnar mínar:)
Hæ elskurnar
Nú er ég rétt að leggja lokahönd á sumargjafarplottið mitt. Fór í Örninn í gær og keypti 24" 21 gíra hjól fyrir Lísu Maríu, og 20" hjól fyrir Elís Viktor með geðveikum sport brettum og látum
. Ég er með börnin, þannig það var grypið í plan B. Mamma náði í hjólin í búðina fyrir mig í dag, og kom með þau eftir að börnin voru sofnuð
. Þau meiga ekki sjá fyrr en á morgun
. Nú eru hjólin í sitthvoru herberginu og bíða eftir að verða tekin í notkun
. Ætla láta börnin sofa uppí hjá mér í nótt, því ef þau væru í sínu herbergi og þyrftu að pissa í nótt, myndu þau sjá hjólin, og allt ónítt. Það má ekki gerast, þannig þau verða uppí hjá mér í nótt
. Ég ætla að láta klukkuna hringja kl 6.45 eins og vanalega, en leifa þeim að sofa, bara svo ég verði örugglega vöknuð og geti fest viðbrögð þeirra á filmu. Þau eru nefninlega hætt að vekja mig, leyfa mér bara að sofa
. Klikkaði á myndunum í hittifyrra, ætla ekki að láta það gerast aftur
. Þá var ég heldur ekki með svona leynimakk, var bara róleg og tók myndirnar eftir á, og alveg nóg af þeim, eins og flestir foreldrar gera
.
Jæja elskurnar ætla fara sofa svo ég klikki ekki á plottinu mínu. Góða nótt elskurnar og eigiði góðan dag
........
Athugasemdir
GLEÐILEGT SUMAR.....
Skemmtið ykkur vel í dag úti að hjóla í góða veðrinu
eybergsmamman , 19.4.2007 kl. 07:34
Farðu nú að segja okkur hvernig börnin brugðust við sumargjöfinni.
PS Ertu búinn að komast að því hver er leynigesturinn í afmælinu?
KV Erla
Erla (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 00:21
Þau urð ótrúlaga glöð með sumargjafirnar
. Ég hélt þau myndu öskra og æpa af spenningi, nei þau urðu alveg orðlaus í pínu stund. Svo var ég knúsuð og kysst á milli þess sem þau spurðu mig spjörunum út um hjólin
.
Nei ég er ekki búin að komast að því hver sé leynigesturinn, hún dóttir þín vill ekkert láta uppi
. Þegar ég las bloggið hennar í gær, fékk ég næstum flensueinkenni af forvitni
. Alveg sama hvað ég reyni, hún segir ekki múkk
.
Silla Ísfeld, 20.4.2007 kl. 07:11
P.s Ég fæ vonandi að sjá leynigestinn í kvöld, það er ekki víst að hann komi, en vonandi
.
Koss og knús
Silla Ísfeld, 20.4.2007 kl. 07:36
Já ástin mín, tók fullt af myndum, náði líka fyrstu viðbrögðunum á videovélina
. Enda vaknaði ég tveimur tímum á undan börnunum og beið eftir að þau vöknuðu
. þau voru ekkert smá hissa, fyrst pírðu þau á mig nývöknuðum augunum, alveg hissa á að ég hafi verið að taka myndir svona snemma. Svo sáu þau hjólin sín og urðu alveg kjaftstopp í pínu stund

. Að sjálfsögðu færðu að sjá þetta allt saman
.
Hlakka til að sjá þig í kvöld, lov jú baby
Silla Ísfeld, 20.4.2007 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.