23.4.2007 | 23:58
Helgin :)
Hæ elskurnar
Fór í afmæli til Elísabetar æskuvinkonu minnar á föstudaginn. Hún var búin að gera mig ótrúlega forvitna með leynigestinn, sem var Ásgeir Kolbeins. Við vorum öll saman í bekk, ég, Elísabet og Ásgeir frá 9ára upp í 10 bekk. Ég rekst reyndar reglulega á hann á förnum vegi, en Elísabet vissi það ekki. Alltaf gaman að hitta gömlu skólafélagana aftur. Fórum á nokkra skemmtistaði og dönsuðum af okkur rassgatið. Ég kom ekki heim fyrr en um morgununn, það var svo gaman hjá okkur. Takk fyrir mig Elísabet mín.
Á laugardaginn var mér boðið á opnun myndlistasýningar hjá Gerði mömmu Ragnheiðar vinkonu, órtúlega flott sýning. Um kvöldið fórum við Ragnheiður, fjölskyldan hennar og makar út að borða á Sjávarrétta kjallarann í tilefni dagsins. Mikið rosalega var góður maturinn þar, hafði ekki farið þangað áður, en mun pottþétt fara þangað aftur. Pönntuðum okkur óvissufeð, sem er allt af öllu, í forrétt aðalrétt og eftirrétt, ekkert smá vel útilátið, við rúlluðum nánast úr. Smakkaði Humar í annað skiftið á ævinni, Tryggvi maður Ragnheiðar " Ha af hverju er það?"....... Núna er uppáhalds maturinn minn Túnfiskur og Humar, oohh það er ótrúlega góður matur.
General prufan hjá Lísu Maríu var í kvöld og sýningin á morgun, ég hlakka ekkert smá til. Þetta er alvöru sýning í leikhúsi, hárgreiðslufólk á staðnum, búningar, og allt. Henni hlakkar rosalega til. Ég var búin að greið henni eins og til var ætlast, hjálpa henni í búninginn og gera hana klára, horfði á hana og fékk alveg tár í augun. Ég er svooo stolt af henni, hún er svo dugleg.... Ef þið heyrið hvell, rétt eftir kl 20.00 á morgun, þá er það líklegast ég sem hef sprungið í loft upp af stolti.
Jibbííí það er saumaklúbbur á miðvikudaginn, hvað á ég að drullumalla fyrir þær?
Jæja ætla fara sofa, er orðin frekar þreytt. Góða nótt elskurnar
Athugasemdir
Takk fyrir það ástin mín, já mun sko taka helling af myndum. Tók nokkrar myndir baksviðs í gær á general prufunni. Við foreldrarnir fengum ekki að sjá þegar stelpurnar fóru á svið, þetta er algjört leyndó þangað til í kvöld. Hlakka ekkert smá til. Sýningin verður tekin upp á dvd, sem veður svo hægt að kaupa, þannig ég verð ekkert rosa mikið stressuð á videovélinni og get meira notið þess að horfa á sýninguna. Mun samt taka video og get þá meira einblínt á hana.
Heyri í þér í kvöld elskan mín, eftir sýninguna og segi þér hvernig gekk. Ef ég kem ekki voða seint, annars á morgun
Silla Ísfeld, 24.4.2007 kl. 12:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.