9.6.2007 | 01:05
pönkari;)
Hæ elskurnar
Fór í klippingu og strípur á miðvikudaginn, ákvað svo að kíkja aðeins á mömmu og pabba seinnipartinn. " Mamma, Silla mín, þú ert alltaf að líkjast pönkara meira og meira." Pabbi, hvað kom fyrir hausinn á þér?" Ohh þau eru alveg frábær
. Ég fíla þetta alveg í botn, alltaf gaman að breyta til
. Fékk þvílíku viðbrögðin frá vinkonum mínum þegar ég kom í ræktina, fimmtudags morguninn, vúhúú túttí frúttí
.
Lísa María fékk einkunnirnar sínar í dag stóð sig EKKERT SMÁ VEL. Ég er ekkert smá stolt af henni
.
Útskriftin í leikskólanum hjá Elís Viktor var á fimmtudaginn. Þvílíkt sem var gert fyrir börnin, þau gleyma þessum degi seint, rosalega flott
.
Fer í mótorhjólatíma á morgun, geeeeggjað
. " Þeysist um á mótorfák og hræðist ekki neitt
" Nei ég er að fíflast, eins gott að fara varlega á þessum tryllitækjum
. Verð á afmörkuðu svæði á morgun, ætla leifa börnunum mínum að koma með og sjá mömmu
. Getið rétt íííímyndað ykkur spenninginn
......
Jæja góða nótt elskurnar
Athugasemdir
Takk fyrir það og takk fyrir það
. Já tíminn er ekkert smá fljótur að líða, alltof fljótur.
Ég var í mótorhjólatímanum áðan, ekkert smá gaman. Börnin ekkert smá stolt af mömmu sinni, fannst ég rosalega klár á hjólinu
.
Silla Ísfeld, 9.6.2007 kl. 13:42
ohh takk fyrir það elskan mín
. þú ert svo mikið æði, og svo nærandi, kemur alltaf með svona yndisleg comment
.....
Silla Ísfeld, 9.6.2007 kl. 13:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.