Hæ elskurnar Jói bróðir á afmæli í dag og er 26 ára, til hamingju með það Jói minn  Annars er frá því að segja, við börnin fórum í Tívolí í gær, ROSALEGA VAR GAMAN HJÁ OKKUR . Börnin fóru í nokkur tæki og svo í pílukast. Fengu sitthvora umferðina hvor, í 3 og síðustu umferðinni skiptu þau pílunum á milli sín, og spiluðu saman. Þau unnu þann leik og völdu sér tígrisdýra bangsa, ekkert smá æðislegt . Voru svo dugleg að vinna og standa saman í leiknum, og vera sammála um val á bangsanum. Uppeldisfræðilega séð, hitti naglinn beint á höfuðið, þau fengu umbun (bangsann) fyrir að standa saman og vera sammála . Er maður ekki alltaf að reyna kenna börnunum sínum þetta, oft hlýst meiri árangur með því að vinna saman, standa saman og vera sammála . Eftir tívolíferðina fórum við rúnt niður Laugarveginn, þvílíka stemningin þar í þessu æðislega veðri sem var í gær. Á skyggni eða skíli skemmtistaðarins Ólívers sátu tónlistar menn og spiluðu, vegfarendum til mikillar gleði og ánægju . Ákvað að smella af þeim eina mynd.... 
Veðrið er svoleiðis búið að leika við okkur undanfarið, þá er svo skemmtilegt að fara í bæinn, alltaf eitthvað um að vera .... Heyri í ykkur elskurnar   |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.