2.8.2007 | 21:13
Leið eins og ég væri ein í heiminum.....
Hæ elskurnar
Það var ekkert smá fátt á æfingu í hádeginu í dag, eins líka á götum borgarinnar. Mér leið næstum eins og ég væri ein í heiminum
. Þegar líða tók á daginn sá ég að það var öðru nær
.......
Ég hef ekki komist í yoga síðan síðasta föstudag, ætla reyna bæta úr því á morgun og skella mér í eitt stykki hádegistíma
. Alveg frábærir tímar.......
Undur og stórmerki, ég var í Hagkaup í gær og sá mann sem ég veit að er miðill. Hann horfði svo á mig, eins og hann vildi segja mér eitthvað, en gerði það ekki, allt í lagi með það. Í dag hringi ég í 118 og bið um símanúmerið í Borgarbókasafninu í Grafarvogi, ekki tengja mig. Var svo gefið beint samband við sálarrannsóknarfélagið sem er félag miðla, þar getur maður pantað miðilsfund hjá hinum ýmsu miðlum
. þessi símanúmer eru ekki einu sinni lík, þar fyrir utan bað ég um að mér væri gefið númerið, en ekki beint samband. Verð að viðurkenna, mér fannst þetta pínu skrítið 2 tilfelli á 2 dögum.......
Heyri í ykkur elskurnar
......
Athugasemdir
Hmmm það er nú greinilega verið að segja þér að panta þér tíma hjá miðli......
Hef annars lítið komið á æfingu, er búin að vera með lungnabólgu, grrrrrrrrr er að verða vitlaus á endalausum hósta en ætla nú að reyna að mæta aðeins í næstu viku.....
Hafðu það gott um helgina
Knús og klem
eybergsmamman , 3.8.2007 kl. 08:20
Já var einmitt að velta því fyrir mér hvort það gæti verið
....
Æ greygið mitt, ekki öfunda ég þig að vera með lungnabólgu. Farðu vel með þig Ásta mín og hafðu góðan bata
Sé þig vonandi sem fyrst á brettinu......
Silla Ísfeld, 3.8.2007 kl. 14:50
Hæjj,
Var enginn búin að segja þér það? Þú ert afturganga Silla mín og miðillinn sá þig, hahahaha!!!
Fór á æfingu í dag með einkaþjálfaranum mínum og það gekk mjög vel.
Kveðja
Friðrika
Friðrika Kristín, 7.8.2007 kl. 21:58
Ahahaha þetta er alveg ekta ykkar Sigga húmor, gæti nokkuð verið að þið séuð hjón sem kyssist upp á títuprjón
... Vel á mynst að kyssa, kysstiru hann frá mér???
Glæsó spæsó, var reyndar búin að frétta það hjá Kristrúnu, hún var að fara þegar ég var að koma
. Ég er að rétta æfingatímann minn af, þannig ég ætti vonandi að rekast á þig í vikunni. Annað er nú ekki NORMAL
......
Silla Ísfeld, 7.8.2007 kl. 22:35
Hæ ástin mín, takk fyrir sömuleiðis
. Já ekki spurning að hringja í þig, ég er orðin frekar spennt, heyri í þér á morgun baby
......
Silla Ísfeld, 9.8.2007 kl. 21:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.