31.8.2007 | 15:27
Komin helgi;)....
Hæ elskurnar
Jæja þá er það enn einn föstudagurinn, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Stundum finnst mér eins og það séu bara tveir dagar í viku, mánudagur og föstudagur. þeir eru víst sjö, tek stundum bara ekki eftir hinum fimm
.
Allavega!!!! Við börnin ætlum að fara til Elísabetar vinkonu í kvöld, þar sem ég ætla að sjá um að kokka kvöldmatinn, og hlakka mikið til
. Ég nefndi það hér á blogginu, fyrr í vikunni að ég hefði verið með matarboð um síðustu helgi, ég hefði haft pastarétt með öööllu tilheyrandi. Þegar Elísabet rak augun í það, var hún ekki lengi að verða sér út um eitt stk matarboð, þessi elska
. Það verður semsagt í kvöld, að vísu ætla ég að elda þetta heima hjá henni, sem er bara skemmtileg tilbreyting frá því að elda alltaf heima hjá sér
. Við verðum með tvíréttað, pastarétt fyrir okkur og annað fyrir börnin sem þeim finnst rosalega gott, svona keppnis eins og sumir myndu orða það
.....
Langar ótrúlega að skella mér í bíó um helgina, sjáum hvað verður
.
Heyri í ykkur elskurnar
.......
Athugasemdir
Takk sömuleiðis ástin mín
. Nei og ekki veit ég hvar ég væri án þín.... Já get ekki sagt það sé algeng sjón að sjá hausinn á þér á yfirsnúnig, en hann er það sannarlega núna....
Já elskan býst við þér eeeeld snemma í morgunkaffi
.....
Silla Ísfeld, 1.9.2007 kl. 01:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.