18.9.2007 | 15:02
Ótrúlegt hvað ég get verið utan við mig;)
Hæ elskurnar
Það er alveg ótrúlegt hvað ég get stundum verið utan við mig, get ekki annað en hlegið af sjálfri mér stundum. Á hverjum morgni byrja ég á því að koma börnunum í skólann og fer svo á æfingu. Ég fer alltaf í æfingarfötunum á æfingu, og læt fötin sem ég ætla vera í yfir daginn í íþróttatöskuna. Dagurinn í dag er einn af þeim dögum, þar sem nánast hver mínúta er niðurnjörvuð. Þurfti þess vegna að taka með mér ýmislegt að heiman í morgunn sem ég þurfti að nota fyrir daginn.
Ég hef greinilega verið eitthvað annarshugar í morgunn, því eitt af því sem ég gleymdi heima voru buxurnar. Áttaði mig á því þegar ég kom úr sturtu á æfingu, og ekki fræææðilegur möguleiki á að fara heim og ná í buxur. Þannig ég var svona nýmóðins í dag í langerma þröngum bol, vesti, SVEITTUM ÆFINGABUXUM, háum leðurstígvélum og stuttri kápu, gaaasalega lekker á fundi með fólki sem ég þekki ekki neitt. Alveg óóótrúleg stundum.....
Ég má þó eiga það, ég er dugleg í ræktinni og að hlaupa afff mér raaassgatið nokkrum sinnum í viku, fyrir utan að vera þyngja jafnt og þétt í lyftingunum..... Mér finnst bara svo drepleiðinlegt að hlaupa, þess vegna finnst mér ég vera duglegri núna en vanalega. Það er samt orðið pínu skemmtilegra að hlaupa þegar maður er að vinna sig svona upp í bæði hraða og þoli. Þetta er fljótt að koma.......
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, heyri í ykkur elskurnar.......
Athugasemdir
Ahahaha já þvílíkt sem ég get verið utan við mig stundum. Svo get ég ekki annað en hlegið af sjálfri mér. Nauðsynlegt að hafa húmor fyrir sjálfum sér, sérstaklega þegar maður á það til að vera pínu ponsu utan við sig....
Silla Ísfeld, 18.9.2007 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.