27.11.2006 | 23:29
Mánudagur 26. nóvember. 2006
Hæ elskurnar
Ojbara ég svaf yfir mig í morgunn, ég sofnaði ekki fyrr en um 3 í nótt. Ég var e-h svo mikið að hugsa svo skemmtilegt, ég gleymdi mér alveg í draumaheimi,. Þannig ég bara svaf á mínu græna í morgunn, ooosssssaaaaa gott. Ég var ekki komin á æfingu fyrr en um kl.10. þetta var svona æfing á hlaupum, en ég tók lyftingu. Lyfti bara mjög létt, ein kunningja vinkona mín kom til mín. Bíddu hvað ertu að gera? Viltu taka þyngra. (Hún vissi ekki neitt, svo heyrðist bara ÓÓÓ)Ég var með 10 kílóa stöng að taka tvíhöfðan, er vön að taka 20 kíló, enda svo á 25 kílóum. Þannig þetta var langt undir getu, ég er aðeins að prófa mig áfram fyrst um sinn. Ef þetta gengur vel, þyngi ég í vikulok.
Annað, það kom galli fram á nýja fína sófaborðinu mínu. Það var svosem allt í lagi, þeir komu með nýtt borð fyrir mig áðan, og tóku þetta gallaða, rosalega almennilegir og góð þjónusta. Sem betur fer var borðið ennþá til, sjónvarpsskápurinn og sófaborðið er nefninlega í sömu línu.... Þetta var allt í góðu. Ég er ekki ein af þeim sem læt e-h svona fara í taugarnar á mér, síður en svo.
Annað, ætla fara í yoga á förtudaginn, það eru svo frábærir tímar á föstudögum, ætla reyna fara í þá annanhvern föstudag. Elísabet vinkona var ekkert smá ánægð með mig, þegar hún vissi að ég væri að byrja stunda yoga. Ég féll alveg gjörsamlega fyrir yoganu þegar ég prófaði það í fyrsta skifti á föstudaginn, fyrir viku síðan. Það er ekki séns ég muni hvað þetta yoga heitir, bara yoga. Ingibjörg Stefánsdóttir er með þetta, ef það segir ykkur e-h. Ég þyrfti helst að komast oftar til að fá meira út úr þessu. Það er eins með yoga og líkamsrækt, það er ekki hægt að mæta aðrahverja viku í líkamsrækt og ætlast til að sjá árangur, það myndi aldrei ganga. Ætla sjá hvað ég get gert til að komast oftar í yoga. En að sjálfsögðu mun ég halda áfram í líkamsræktinni 6 sinnum í viku eins og ég er vön, sénsinn, bensinn ég sleppi því.
Jæja elskurnar, ætla fara lesa og sofa svo ég vakni á réttum tíma. Góða nótt elskurnar. Eitt í viðbót, ég er búin að heyra skrilljón jólalög, það er alveg mér að skapi. "Í kvöld, jólin eru að koma, í kvöld, jólin eru að koma" . Ok, já ég er hætt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.