25.10.2007 | 23:53
Smá blogg;)
Hæ elskurnar
Ég var stödd í Hagkaup í smáralindinni í kvöld, ég hélt ég myndi missa mig. Það er komið jóla þetta og jóla hitt, get svo svaaariða, það verður bara skammhlaup í hausnum á mér, og bara ein setning kaupa, kaupa, kaupa, kaupa.
Annars var síðasta helgi alveg æðisleg svo ég segi ykkur aðeins frá henni. Ragnheiður vinkona og Palli vinur okkar sóttu mig á föstudagskvöldið og fórum aðeins út á tjúttið, mjög gaman eins og alltaf. Það er svo skrítið, það er nánast undantekningarlaust þegar við Ragnheiður förum saman út að við erum spurðar hvort við séum systur. Okkur finnst það baaara fyndið og skemmtilegt. Fórum á B5, Thorvaldsen, Ólíver og fleiri staði hittum fullt af fólki, ossa gaman.
Á laugardeginum tók ég geðveika æfingu, fór í heimsóknir, var svo bara róleg um kvöldið og vann að skýrslu sem ég þurfti að ljúka við fyrir mánudag, varðandi vinnuna. Þessi skýrsla hvíldi svolítið á mér, þar sem ég hef aldrei gert svona skýrslu áður. Ég sem er með netta fullkomnunaráráttu, gat auðvitað ekki skilað skýrslunni neitt öðruvísi en 100% og var þess vegna heima á laugardagskvöldi, pabbahelgi og allt, að vinna skýrsluna....
Það er svo æææðislegur tími framundan, hlakka svooo mikið til, segi ykkur frá því seinna....
Góða nótt elskurnar....
Athugasemdir
Hlakka til að heyra um þennann spennandi tíma sem er framunndan:)
Ég hef ekkert mætt í ræktina þar sem ég varð aftur veik og er þá búin að vera lasin meira og minna í 3 vikur. Hef ALDREI lent í öðru eins. Vona að ég verði orðin spræk næsta mánudag og hitti þig á brettinu...
Knús og klem,
Ásta
eybergsmamman , 26.10.2007 kl. 07:18
Já þú færð að heyra allt um spennandi tímann sem er framundan....
Ég var einmitt að spá í hvað hefði orðið um þig, ég vona svo innilega að þú náir þér sem allra fyrst. Það er ekki það sama að vera á brettinu án þín. Hafðu góðan bata Ásta mín, vona að ég sjái þig á brettinu sem fyrst.... Hlakka til að sjá þig og taka spjallið okkar góða....
Kossar og knús
Silla Ísfeld, 26.10.2007 kl. 08:51
Jááátss ég hlakka rooosalega til, það verður ekkert smá gaman hjá okkur....Þú veist ég geri ráð fyrir þér í fyrramálið elskan mín, þá leggjum við línurnar varðandi næsta laugardag.... Hlakka ekkert smáááá til, fæ alveg kitl í magan....
Lov jú tú baby....
Silla Ísfeld, 26.10.2007 kl. 14:49
Góð helgi og vonandi heppnaðist skýrslan vel
Halldór Sigurðsson, 29.10.2007 kl. 22:09
Já takk fyrir Halldór, hún heppnaðist mjög vel, fékk meira að segja hrós fyrir vel og unna skýrslu....
Silla Ísfeld, 30.10.2007 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.