Ekki tínd og tröllum gefin

Hæ elskurnarKissing

Loksins kemur blogg, hef lítinn tíma haft til að blogga undanfarið. Það hefur verið mikið að gera í vinnunni, svo hef ég reynt að nýta hverja smugu til ferðalaga, hvort sem það er til lengri eða skemmri tímaWink....

Ég heyrði í Rakel frænku í dag sem býr út í Noregi, hef ekki heyrt í henni í nokkrar vikur og ég hef ekkert bloggað í góðan tíma, eins og þið vitið sjálf. Veit ekki hvað hún hefur haldið að hefði komið fyrir frænku sína. Það var ekki verið að segja hæ, þegar hún kom í símannSmile. Það var bara " rosalega er gott þú hringir, ertu með lífsmörkum? ÞÚ HEFUR EKKERT BLOGGAÐ SÍÐAN Í BYRJUN ÁGÚSTSmile..... Ég hef verið að spá hvort ég ætti að hætta að blogga, ennnn það er greinilega ekki í boðiLoL. Og ætla þess vegna ekki að láta mér detta neitt annað í hug, en að halda áfram að bloggaWink. Ég heyri næstum í Rakel segja " já, það er eins gott fyrir þig"LoL.

Annars er það að frétta að litli snúllinn minn var að byrja í skóla, ekkert smá stoltur af því. Hann er búin að bíða og bíða og bíða og bíða eftir að komast í sólann og loksins er hann byrjaðurLoL. Lísa María var að fara í 8 ára bekk, þá eru hún í skólanum sjálfum sem er ekkert smá mikið sport. 6 og 7 ára bekkirnir eru nefnilega hafðir í skúrum sem eru á skólalóðinni, svona á meðan þau eru að aðlagast skólakerfinu, brilliant fyrirkomulagWink.

Jæja svo er bara aftur blogg á morgun, heyri í ykkur þá elskurnarKissingKissingKissing........

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá að þú ert farim að skrifa aftur, Til haningju með skóla strákinn. Þú mættir nú láta sjá þig, KV Erla

Erla (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 22:59

2 Smámynd: Silla Ísfeld

Takk elskan, er þokkalega búin að átta mig á að það er ekki í boði að kveðja bloggheima. Ég verð hér og bulla áfram.

Takk sömuleiðis fyrir mig elskan mín, ég alveg eeelska kaffið þitt.... Já ég viiiiissi þú myndir samþykkja þetta, var með það á kristaltæru......

Silla Ísfeld, 26.8.2007 kl. 10:26

3 Smámynd: Silla Ísfeld

Takk fyrir Erla mín! Já litla barnið mitt byrjað í skóla, mér finnst það alveg rosalegt, mér fannst ekkert mál þegar Lísa María byrjaði í skóla. En þetta er allt annað þegar bæði börnin eru komin í skóla, þau eru orðin svo stóóóór.... Já það væri gaman að kíkja á ykkur með Elísabetu við gott tækifæri, við þurfum að láta verða að því sem fyrst.....

Silla Ísfeld, 26.8.2007 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband