29.9.2007 | 10:18
Frááábær dagur í dag:)
Hæ elskurnar
Jebb frábær dagur í dag, 29 september. Sveppi byrjaði í morgunsjónvarpi barnanna, börnunum mínum til mikillar gleði og ánægju. Einhverstaðar las ég að Vignir í Írafár væri að gifta sig í dag, sem er ekki skrítið, einn af bestu dögum ársins. Svo á ég afmæli í dag, ligga, ligga lááiiii....
Ætla ekki að hafa þetta lengra en Elísabet vinkona segir að þið eigið að gefa mér risa pakka (by the way.. það er ég Elísabet sem er að skrifa þessa línu)
Silla aftur á lyklaborðið Það var bara rifið af mér lyklaborðið. Jebb hún Elísabet var mætt í morgunnkaffi kl.9 í morgun eins og er venjan er hjá okkur vinkonum annanhvern laugardag, á meðan stelpurnar hennar eru á skautum. Svona á að gera þetta, mjög hentugt að nýta tímann til að rækta vinskapinn.....
Heyri í ykkur elskurnar.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.9.2007 | 21:04
Fékk æææðislegt símtal í morgunn:)
Hæ elskurnar
Ég fékk svooo æææðislegt símtal í morgunn, rétt nýkomin af æfingu og var að skella í mig skyri áður en ég hentist í vinnuna, mikið að gera í dag. Þegar ég svaraði í símann "halló" var það Lilja vinkona, sem söng svo fallega afmælissönginn minn. Þá hafði hún farið dagavilt og fannst það vera 26 en ekki 29 september. Ohh mér fannst þetta æææðislegt, þó þetta hafi verið 3 dögum of snemmt, það skiptir engu máli. Ég ljómaði alveg svoleiðis á meðan ég hlustaði á afmælissönginn minn, starfsfólkið í Laugum hefði geta slökkt ljósin og sparað rafmagnið í nokkrar mínútur og ljóminn af mér hefði tendrað allt. Mér fannst þetta æææðislegt, takk fyrir mig elsku besta Lilja mín. Ekkert smá fallega hugsað, hún ætlaði sko aldeilis að muna eftir vinkonu sinni.......
Jæja fitumæling tomorrow mr Zorro. Ég er búin að vera taka mig gjörsamlega upp á rassgatinu á æfingum, og nú mun árangurinn koma í ljós, svart á hvítu, hvernig það hefur gengið. Ég hlakka mikið til skal ég segja ykkur, samviskan er alveg kristaltær sem hún er reyndar alltaf, ég er svo samviskusöm.....
Heyri í ykkur elskurnar......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
24.9.2007 | 23:00
Ég hlakka svo til;)
Hæ elskurnar
Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til. Er jólalagið ekki svona? Vitiði ég er farin að hlakka svo til jólanna, ég er alveg komin með fiðring í magann. Ég er svo mikið jólabarn, mér finnst þetta er svo æðislegur tími...... En ég er samt alveg að reyna halda aftur að mér, það er náttúrlega pííínu langt í jólin. En eins og vanalega flýgur tíminn áfram og það verða komin jól áður en maður veit af...... Það eru alltaf svo æææðislegir tónleikar í desember í Smáralindinni, daginn sem coca cola lestin keyrir um allann bæinn, það er alveg regla á þessu heimili að fara á þá tónleika. Og allir geisladiskarnir og jólabækurnar, þetta er baaara æðislegur tími. Ok, ok nú er ég hætt....
En allavega, helgin! Á föstudeginum kíkti ég í heimsóknir, á milli þess sem ég blaðraði í símann við þá sem ég heimsótti ekki. Á laugardaginn tók ég þvílíka æfingu, og um kvöldið kíkti ég svo í heimsókn til Ragnheiðar vinkonu, var hjá henni aðeins frameftir og fór svo bara heim. Æðislega gaman og alveg frábært kvöld. Ég var ekki alveg í djammgírnum, var búin að vera slöpp með svima og velgju í maganum, þannig ég fór heim. Rosalega eru margir í kringum mig búnir að vera með svima síðustu daga, kvef og svima, upp og niður og svima, eða bara svima, alveg stórfurðulegt..... Ég hefði haldið að svimi tengdist allt öðru en flensueinkennum. En svona er þetta, veit ekki , veit ekki..... Ég er allavega orðin hress og ekkert stress....
Jæja elskurnar heyri í ykkur......
Bloggar | Breytt 25.9.2007 kl. 07:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.9.2007 | 15:02
Ótrúlegt hvað ég get verið utan við mig;)
Hæ elskurnar
Það er alveg ótrúlegt hvað ég get stundum verið utan við mig, get ekki annað en hlegið af sjálfri mér stundum. Á hverjum morgni byrja ég á því að koma börnunum í skólann og fer svo á æfingu. Ég fer alltaf í æfingarfötunum á æfingu, og læt fötin sem ég ætla vera í yfir daginn í íþróttatöskuna. Dagurinn í dag er einn af þeim dögum, þar sem nánast hver mínúta er niðurnjörvuð. Þurfti þess vegna að taka með mér ýmislegt að heiman í morgunn sem ég þurfti að nota fyrir daginn.
Ég hef greinilega verið eitthvað annarshugar í morgunn, því eitt af því sem ég gleymdi heima voru buxurnar. Áttaði mig á því þegar ég kom úr sturtu á æfingu, og ekki fræææðilegur möguleiki á að fara heim og ná í buxur. Þannig ég var svona nýmóðins í dag í langerma þröngum bol, vesti, SVEITTUM ÆFINGABUXUM, háum leðurstígvélum og stuttri kápu, gaaasalega lekker á fundi með fólki sem ég þekki ekki neitt. Alveg óóótrúleg stundum.....
Ég má þó eiga það, ég er dugleg í ræktinni og að hlaupa afff mér raaassgatið nokkrum sinnum í viku, fyrir utan að vera þyngja jafnt og þétt í lyftingunum..... Mér finnst bara svo drepleiðinlegt að hlaupa, þess vegna finnst mér ég vera duglegri núna en vanalega. Það er samt orðið pínu skemmtilegra að hlaupa þegar maður er að vinna sig svona upp í bæði hraða og þoli. Þetta er fljótt að koma.......
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, heyri í ykkur elskurnar.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2007 | 13:07
Nú er ég forvitin:)
Hæ elskurnar
Heyrðu, heyrðu nú hefur stjörnuspáin aldeilis náð að vekja forvitni mína.....
VOG 23. september - 22. október
Þú ert á nýjum og spennandi stað í persónulegu sambandi. Möguleikarnir eru ótal margir. Farðu þér hægt, eitthvað algerlega einstakt er að fæðast.Ég tek enganvegin mark á svona stjörnuspám, en stundum eiga þær við. það er mjög sjaldan, allavega hvað mig varðar. Held þessi stjörnumerkjaspákona hafi fengið samviskubit, því stjörnuspá vogarinnar er alltaf svo leiðinleg hjá henni. Þar sem þetta er mánuður vogarinnar hefur hún örugglega ákveðið að segja e-h skemmtilegt núna.
Heyri í ykkur elskurnar.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2007 | 19:34
Nú er alveg svoleiðis búið að snúa upp á hendurnar á mér;)
Hæ elskurnar Jebb nú er alveg svoleiðis búið að snúa upp á hendurnar á mér, varðandi að láta inn nokkrar uppskriftir. Síðast núna í morgun þegar Elísabet æskuvinkona mín mætti í morgunkaffi kl: 9 í morgun Það verður vonandi þannig aðra hverja helgi í aaallan vetur, dætur hennar æfa nefninlega skauta rétt hjá mér. það er þá mjög henntugt að koma í morgunkaffi til mín á meðan. Reyndar ætlast ég líka bara til þess. Eitt af því sem ég var með, með kaffinu í morgun var skyrkaka. Elísabet vildi endilega fá þessa uppskrift líka, þannig ég skelli henni líka inn, ásamt uppáhalds pasta réttinum mínum, hann er sérstaklega látinn hingað inn fyrir vin Elísabetar sem hún kallar Doddaling...... Tortellini réttur í piparostasósu, uppáhalds pastarétturinn minn..... 1 Tortellini poki m/ kjötfyllingu * Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Skyrkaka.... 1 stór Homblest kexpakki Homblest kexpakkinn er mulinn niður og látinn í botn skálarinnar. Þeytið rjómann, hrærið upp í skyrinu og blandið varlega saman við rjómann, hrærið vel og vandlega. Skyrhræringnum er hellt yfir kexið og látinn í frystir í ca klukkutíma. Jæja elskurnar, vona þið njótið góðs af þessu, heyri í ykkur......
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.9.2007 | 21:53
Geggjuð helgi að baki:)
Hæ elskurnar
Þetta var vægast sagt geggjuð helgi, á föstudeginum fór ég í smá dekur, heimsókn til mömmu og pabba. Kíkti svo í heimsókn með mömmu til vinkonu hennar sem er nýflutt á Vellina í Hafnarfirði. Geggjuð íbúð sem hún keypti sér, og segir að þetta sé æðislegt hverfi, get vel trúað því....
Á laugardeginum kíkti ég í Baðstofuna með Elísabetu æsku vinkonu minni, vorum komnar laust fyrir hádegi og eyddum þarna öllum deginum, var ekki komin út fyrr en eftir klukkan sex, og fórum létt með það. Við fengum okkur að borða á veitingarstaðnum sem er þarna niðri, ekkert smá gott. Þegar ég ætlaði að borga fyrir mig, dró hún upp kortið sitt og sagði NEI, ÉG BORGA FYRIR BÁÐAR, alveg ákveðin í því. Takk fyrir mig enn og aftur elsku besta Elísabet mín. Um kl átta hringdi Aníta vinkona og plataði mig með sér á tjúttið. Aaaauðvitað skellti ég mér með henni, þar sem börnin voru hjá pabba sínum þessa helgi. Það var ekkert smá gaman hjá okkur, hittum tvo æskuvini mína og vorum með þeim allt kvöldið, ekkert smá gaman. Þeir eru vægast sagt mjög hressir og var mikið hlegið þetta kvöld, geggjað stuð.
Á sunnudeginum kíkti ég í heimsókn til Rannveigar systir, sem ég ætlaði reyndar að gera á laugardeginum, fékk smá skammir fyrir vikið. En var svo dekruð með æðislegum kökum og snúðum sem voru sérstaklega fyrir mig, haldiði það sé flottheit, allt gert fyrir sóru systir.... Ég hafði ekki séð börn systur minnar í smá tíma, þannig þau voru knúsuð alveg svoooleiðis bak og fyrir, ekkert smá sem ég hafði saknað þeirra. Takk fyrir mig Rannveig mín og Elli, fyrir æðislegar kökur og gott kaffi.
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, heyri í ykkur elskurnar......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.9.2007 | 01:00
Fríka út, fríka út;)
Hæ elskurnar Vog 23. september - 22. október Alltaf gaman að fríka út, geri það reglulega. Hvort sem það er í fræðandi bókalestri mér til skemmtunar og fróðleiks, varðandi menntun, í góðra vina hópi, og svo finnst mér alveg æðislegt að fíflast með börnunum mínum. Þannig ég held ég sé vel sett af allri fríka út flórunni.... Heyri í ykkur elskurnar........ |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2007 | 15:27
Komin helgi;)....
Hæ elskurnar
Jæja þá er það enn einn föstudagurinn, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Stundum finnst mér eins og það séu bara tveir dagar í viku, mánudagur og föstudagur. þeir eru víst sjö, tek stundum bara ekki eftir hinum fimm.
Allavega!!!! Við börnin ætlum að fara til Elísabetar vinkonu í kvöld, þar sem ég ætla að sjá um að kokka kvöldmatinn, og hlakka mikið til. Ég nefndi það hér á blogginu, fyrr í vikunni að ég hefði verið með matarboð um síðustu helgi, ég hefði haft pastarétt með öööllu tilheyrandi. Þegar Elísabet rak augun í það, var hún ekki lengi að verða sér út um eitt stk matarboð, þessi elska. Það verður semsagt í kvöld, að vísu ætla ég að elda þetta heima hjá henni, sem er bara skemmtileg tilbreyting frá því að elda alltaf heima hjá sér. Við verðum með tvíréttað, pastarétt fyrir okkur og annað fyrir börnin sem þeim finnst rosalega gott, svona keppnis eins og sumir myndu orða það.....
Langar ótrúlega að skella mér í bíó um helgina, sjáum hvað verður.
Heyri í ykkur elskurnar.......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.8.2007 | 15:50
Gaman að læðupokast;)
Hæ elskurnar
Ég var að hlaða inn nýjum myndum í tölvuna þegar ég rakst á þessa mynd. Elís Viktor á það til að laumast í töskuna mína, taka myndavélina og taka myndir af hinu og þessu þegar ég sé ekki til. Þær koma margar hverjar mjög skemmtilega út, þar á meðal þessi mynd, hún hangir á ísskápnum hjá okkur og hefur greinilega legið beinast við þegar sonur minn laumaðist í töskuna mína. Börnin mín birtust semsagt á forsíðu Fréttablaðsins fyrir nokkrum vikum þegar Kringlan varð 20 ára. Þau sitja á gólfinu, alveg fremst.
Heyri í ykkur elskurnar......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)