Nú er alveg svoleiðis búið að snúa upp á hendurnar á mér;)

Hæ elskurnarKissing

Jebb nú er alveg svoleiðis búið að snúa upp á hendurnar á mér, varðandi að láta inn nokkrar uppskriftir. Síðast núna í morgun þegar Elísabet æskuvinkona mín mætti í morgunkaffi kl: 9 í morgunGrin Það verður vonandi þannig aðra hverja helgi í aaallan vetur, dætur hennar æfa nefninlega skauta rétt hjá mér. það er þá mjög henntugt að koma í morgunkaffi til mín á meðanGrin. Reyndar ætlast ég líka bara til þessWink. Eitt af því sem ég var með, með kaffinu í morgun var skyrkaka. Elísabet vildi endilega fá þessa uppskrift líka, þannig ég skelli henni líka inn, ásamt uppáhalds pasta réttinum mínum, hann er sérstaklega látinn hingað inn fyrir vin Elísabetar sem hún kallar DoddalingLoL......

Tortellini réttur í piparostasósu, uppáhalds pastarétturinn minnSmile.....

1 Tortellini poki m/ kjötfyllingu
1 Græn paprika
1 Askja niðurskornir ferskir sveppir
1-2 hvítlauksrif ef vill, má sleppa
1 Bunkt skinka ca 10-12 sneiðar
1 Heilt bréf pepperoni
1 Piparostur
3 dl Undarenna eða léttmjólk

* Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
* Á meðan pastað er að sjóða, skerið paprikuna í strimla, sveppina í sneiðar, merjið hvítlaukinn, skerið skinkuna í teninga, pepperoníið til helminga og steikið allt saman á pönnu. Þegar grænmetið er tilbúið, hellið þá 3 dl af Undarennu útá grænmetið og sneiðið piparostinn yfir. Látið krauma þar til piparosturinn hefur bráðnað að fullu. Allt vatn er sigtað frá Torteliniinu og grænmetinu hellt yfir, Torteliniið og látið malla í 5 mín. Það er mjög gott að bera þennan rétt fram með hvítlauksbrauði eða heitu baguett brauði.

SkyrkakaSmile....

1 stór Homblest kexpakki
1/4 peli rjómi
1 stór dós KEA Vanilluskyr
Jarðaberjasulta
Fersk jarðaber

Homblest kexpakkinn er mulinn niður og látinn í botn skálarinnar. Þeytið rjómann, hrærið upp í skyrinu og blandið varlega saman við rjómann, hrærið vel og vandlega. Skyrhræringnum er hellt yfir kexið og látinn í frystir í ca klukkutíma.
3-4 matskeiðar af jarðaberja sultu eru hitaðar í örbylgjuofni og smurðar yfir skyrhræringinn. Fersk jarðaber skorin niður og dreift yfir. Skyrhræringurinn látinn þyðna og borinn á borð. Það er allt í lagi þó það sé smá frost í honum þegar hann er borinn fram, ekkert verri fyrir vikið. Mér finnst gott að hafa mikið af ferskum jarðaberjum dreift yfirWink....

Jæja elskurnar, vona þið njótið góðs af þessu, heyri í ykkurKissingKissingKissing......

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Silla Ísfeld

Já elskan mín, hann er ljúfur sem lamb eins og alltaf. Það er búið að vera rosa gaman hjá okkur. Börnin tóku kitlu árás á mig, réðust á mig öll 3, héldu mér og kitluðu mig í kaf, geggjað stuð. Ég er náttúrlega brjálæðislega kitlin eins og þú veist.... Það er búið að vera ossa, ossa gaman hjá okkur.....

Lov jú baby

Silla Ísfeld, 15.9.2007 kl. 22:32

2 identicon

Ástarþakkir fyrir linkinn á þetta Lísa ... og sömuleiðis til þín Silla fyrir þessa lystisemd!!!! Ég þarf að bíða eftir tækifæri til að elda þetta fyrir mig og ég læt þig vita.

 Þúsund þakkir!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 10:20

3 Smámynd: Silla Ísfeld

Mín var ánægjan Doddi minn. Já það væri gaman að heyra hvernig smakkast hjá þér. Ég gleymdi reyndar að taka það fram, ef þú vilt ekki hafa réttinn alveg svona sterkan, er líka mjög gott að nota bara hálfan piparost, og minnka þá líka  mjólkurhlutfallið í ca 2 dl. Mig minnir nefnilega ég hafi lesið hjá þér í Commentunum hjá Elísabetu, að konan þín og dætur séu ekki mikið fyrir sterkan mat. Ég hef notað þennan rétt mikið í veislum og nota þá bara hálfann ostinn, þá gengur hann ofaní alla, ömmurnar, börnin og alla. En svo þegar ég er með svona gesti eins og Elísabetu og fleiri, þá leifi ég mér að hafa réttinn rótsterkan.....

Endilega leifðu mér að heyra hvernig smakkast, gangi þér vel......

Silla Ísfeld, 16.9.2007 kl. 10:59

4 identicon

Það er rétt ... sterkur matur á ekki upp á pallborðið hjá þeim, en ég læt þig vita. Sjálfur vil ég hafa þetta rótsterkt, enda er ég sjaldan kvefaður ... eða alltaf (og þykist ekki vita af því!)

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 20:04

5 Smámynd: Silla Ísfeld

Já það er voða gott að fá sterkan mat inn á milli, ég hef það svona spaí..... Ég virðist þola ótrúlega sterkan mat, á meðan aðrir eru másandi og blásandi í algjöru svita baði er ég hin rólegasta. Ég myndi samt ekki segja ég væri vön að borða sterkan mat, síður en svo, það er eins og ég segi, bara sparí!

Silla Ísfeld, 16.9.2007 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband